Þann 17. ágúst fjallaði fréttatími RÚV um uppgröftinn á Hrafnseyri. Sjá má fréttina með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.
Undanfarna daga hafa 10 nemendur í fornleifafræði frá hinum ýmsu háskólum í Bretlandi og Skotlandi dvalist hér á Hrafnseyri við uppgröft undir leiðsögn kennara síns Margrétar Hallmundsdóttur fornleifafræðings frá Náttúrustofu Vestfjarða, en Margrét hóf fornleifauppgröft hér á Hrafnseyri síðastliðið haust. Stutt er síðan mannabein fundust hér í miðaldakirkjugarðinum á Hrafnseyri fyrir rúmlega mánuði síðan.
Upplýsingar
Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.
A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.
Opnunartími (Opening hours)
1. júní - 8. september
kl. 11:00 - 17:00 alla daga
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Hópar utan opnunartíma
Vinsamlegast hafið samband til að bóka komur hópa utan opnunartíma.
Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is