Um þessar mundir eru lögð drög að bókmennta– og menningarverkefninu Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða. Tilurð þess má rekja til Akurskóla Íslenskudeildar Manitóbaháskóla; sumarnámskeiðs á Vestfjörðum árin 2007–2015 sem haldið var í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða og Hrafnseyri. Bókmenntafræðingarnir Birna Bjarnadóttir og Ingi Björn Guðnason munu kynna verkefnið, útlínur þess og velunnara.
13:00 - 13:45 |
Hátíðarguðþjónusta: Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir Þingeyrarprestakalli þjónar fyrir altari og sr. Elín Salóme Guðmundsdóttir prestur í Patreksfjarðarprestakalli prédikar. Kaffiveitingar á meðan hátíð stendur. |
14:15 |
Setning Þjóðhátíðar Tónlist: Jóngunnar Biering Margeirsson Hátíðarræða: Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Útnefning bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar |
15:00 |
Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson. Myndlistamaður sumarsins er Jón Laxdal. Börn geta farið á hestbak undir leiðsögn. Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu. Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30 Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00 Kaffi og afmælisterta í boði Hrafnseyrar verður á meðan á dagskrá stendur fram til kl. 17:00. |
Upplýsingar
Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.
A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.
Opnunartími (Opening hours)
1. júní - 8. september
kl. 11:00 - 17:00 alla daga
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Hópar utan opnunartíma
Vinsamlegast hafið samband til að bóka komur hópa utan opnunartíma.
Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is