Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heimsækir Hrafnseyri 16. júní í fyrsta sinn eftir að hann varð forseti.
Dagskrá hátíðar í tilefni komu forsetans má lesa hér fyrir neðan
11:00 - 11:45 |
Hátíðarguðþjónusta: Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir Þingeyrarprestakalli þjónar fyrir altari og sr. Geir Waage sóknarprestur í Reykholti prédikar. |
12:00 - 12:20 |
Hátíðarræða í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands 2018: |
12:20 - 12:25 |
Forseti Íslands leggur blómsveig að minningarsteini Jóns Sigurðssonar. |
12:25 - 12:35 |
„BLAKTA“. Tónverk eftir Halldórs Smárason tónskáld, frumflutt af kvartettinum Sigga. |
12:35 - 12:45 |
Æskuminningar frá Hrafnseyri: Sr. Geir Waage |
13:00 - 14:45 |
Ísland – Argentína. Heimsmeistaramót í knattspyrnu. Leikurinn verður sýndur í tjaldi á stórum skjá á Hrafnseyri. Hátíðargestir ásamt forseta Íslands horfa á leikinn. |
15:00 - 16:00 |
Hátíðleg athöfn í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda. Myndataka, gróðursetning birkiplantna |
Opnun sýningar Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur myndlistarmanns sumarsins.
Kynnir á hátíðinni er Einar K. Guðfinnsson, formaður afmælisnefndar aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands
Súpa og kaffiveitingar til sölu á meðan hátíð stendur
Börn geta farið á hestbak undir leiðsögn.
Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.
Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 09:30
3 mín. síðar stoppar hún við Hlíf, en heldur svo áfram til Hrafnseyrar.
Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 16:30
Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútu.