Krakkaveldi tekur yfir Hrafnseyri

Vinnusmiðja Krakkaveldis, Barnabærinn, mun taka yfir Hrafnseyri við Arnarfjörð fimmtudaginn 14. september á Púkanum barnamenningarhátíð Vestfjarða. Þátttakendur í smiðjunni eru börn á miðstigi grunnskólanna á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri.

Sýningin hefst kl. 12:30, fimmtudaginn 14. september og er opinn öllum.

Barnabærinn er samfélagstilraun þar sem börnunum er frjálst að prófa sig áfram með hugmyndir sínar líkt og á tilraunastofu. Bærinn verður lítið útópískt samfélag þar sem börn ráða ríkjum og reynir þannig að svara spurningunni: Hvernig væri heimurinn ef börnin réðu öllu?

Útkoma smiðjunnar er sviðslistaverk þar sem börnin bjóða almenningi að stíga inn í sinn draumaheim á sviðinu. Sýningin fer fram á Hrafnseyri og er miðuð að fullorðnum þó börn séu velkomin á hana líka. Takmarkið er að fullorðnir gefi sig á vald börnunum í þáttökusviðslistaverki sem er um hálftími að lengd.

Krakkaveldi miðar að því að ögra valdasambandi barna og fullorðinna. Mikilvægur þáttur verkefnisins er samstarf listrænna stjórnenda við þau börn sem taka þátt í verkefninu hverju sinni. Börn eru hópur í samfélaginu sem hefur hvað minnst völd yfir umhverfi sínu, þó ákvarðanir fullorðinna við stjórn hafi ekki síður áhrif á þau en aðra. Krakkaveldi miðar að því að spyrja gagnrýnna spurninga með sviðslistaverkum sínum um hvaða möguleikar felist í að breyta þeim valdastrúktúr.

Hrefna Lind Lárusdóttir og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leiða vinnuna. Guðný Hrund Sigurðardóttir leikmyndahönnuður sér um sjónrænan þátt smiðjunnar í samstarfi við börnin, þar sem samsköpun og listrænt frelsi er falið þátttakendum.

Safn Jóns Sigurðssonar áHrafnseyri og Grunnskólinn á Þingeyri standa fyrir vinnusmiðjunni í samstarfi við Krakkaveldið. Krakkaveldið er styrkt af Barnamenningarsjóði.

Til baka

Upplýsingar

Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.

A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.

Opnunartími (Opening hours)

1. júní - 8. september

kl. 11:00 - 17:00 alla daga

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Hópar utan opnunartíma
Vinsamlegast hafið samband til að bóka komur hópa utan opnunartíma.

Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is