Sumarháskóli í safnfræðslu 
– söfn og umhverfi sem námsvettvangur 
Einstakt þriggja daga hagnýtt helgarnámskeið í töfrandi umhverfi á vegum námsbrautar 
í safnafræðum, Rannsóknaseturs í safnafræðum við Háskóla Íslands og Sumarháskóla Hrafnseyrar.

Staðsetning: Hrafnseyri við Arnarfjörð 
Tími: 30. ágúst - 1. sept 2013 
Verð: kr. 50.000* ( 5.000 kr staðfestingagjald ) 
Skráning: hrafnseyri@hrafnseyri.is 
Sendið nafn, kennitölu og símanúmer. Takmarkaður fjöldi!

Námskeiðslýsing: 
Safnfræðsla (museum education) er óaðskiljanlegur þáttur safnastarfs – ef ekki megintilgangur þess. Söfn og umhverfi sem skapandi námsvettvangur 
gegna mikilvægu hlutverki fyrir alls konar fólk. Vettvangsferðir sem námsleið eru nátengdar safnfræðslu. Söfn og umhverfi geta verið líflegt kennsluform 
og náð til allra skólastiga. Unnið verður með sjónrænan vettvang náms, kennslumódel og kennsluaðferðir sem henta vel á söfnum og í vettvangsferðum 
ásamt því að skoða nálganir á safnfræðslu fyrir ólíka hópa og aðstæður. Tilraunir verða gerðar með upplifun og virkjun allra skynfæra – að horfa, hlusta, 
lykta, snerta og/eða bragða ef svo ber undir. Á námskeiðinu verður rýnt í hugmyndir um menntunarhlutverk safna og hugmyndir um fagurfræðilega 
upplifun sem geta komið að góðu gagni í verkfærakistu kennara, safnafólks og leiðsögumanna. Kenningar og nálganir eru skoðaðar sem geta gagnast á 
hvaða safni eða umhverfi sem er. Námskeiðið er öllum opið sem áhuga hafa á viðfangsefninu en sérstaklega er höfðað til kennara á leik- og grunnskólastigi, 
sem og safnmanna og aðila í ferðaþjónustu sem nýta sér söfn.

Tilkynning námskeiðs

Dagskrá námskeiðs

* Innifalið í verði er námskeiðsgjald, huggulegt svefnpokapláss, morgunmatur, kaffi og meðlæti, léttur hádegisverður og kvöldmatur, ásamt vettvangsferðum í Skrímslasetrið og Meldódíur minninganna á Bíldudal og safn Samúels Jónssonar í Selárdal.

Opnunartími (Opening hours)

1. júní - 3. september

kl. 11:00 - 17:00 alla daga

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Hópar utan opnunartíma
50.000 kr. lágmarksgjald (15 manns).
1.500 kr. fyrir hvern umfram 15.

Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is

 

Upplýsingar

Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.

A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.