Sumarháskóli
Frá árinu 2006 hafa sumarnámskeið á háskólastigi verið haldin á hverju sumri í Safni Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Námskeiðin hafa ávalt verið opin öllum þótt um kennslu á háskólastigi sé að ræða og sérstakt þema hafi verið tekið fyrir hverju sinni.
Nánar »
Rannsóknir
Rannsóknarverkefnið „Arnarfjörður á miðöldum“ hefur staðið yfir frá árinu 2011. Verkefnið hefur leitt í ljós afar merkilegar fornminjar á Hrafnseyri, bæði frá landnámi og miðöldum. Má þar nefna skála og jarðhýsi frá landnámsöld auk merkilegra minja frá miðöldum á borð við jarðgöng. Á næsta bæ við Hrafnseyri, Auðkúlu í Auðkúluhreppi, hafa staðið yfir rannsóknir á landnámsbýli frá árinu 2015.
Nánar »Veitingar
Kaffi, kökur og vöflur framreiddar í burstabænum (austan við sjálft safnhúsið).
Opið 1. júní – 3. september
Kl. 11:- 17:00 alla daga og eftir samkomulagi.
Sími: 456-8260
Vefmyndavél á Hrafnseyri/Webcam Hrafnseyri
Nánar »