Þann 16. og 17. júní verði hátíðardagskrá á Hrafnseyri í tilefni 80 ára afmælis íslenska lýðveldisins og 1150 ára sögu byggðar á Íslandi. Þann 16. júní verður sjónum sérstaklega beint að landnámsminjum á Hrafnseyri þegar sýningin „Landnám í Arnarfirði“ verður opnuð. Börnin fá einnig að kynnast fornleifafræði af eigin raun í fornleifaskóla fyrir börn. Íbúar af erlendum uppruna eru sérstaklega boðnir velkomnir á Hrafnseyri í samstarfi við verkefnið Gefum íslensku séns. Verkefnið „Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið“ verður einnig kynnt og boðið upp á smiðjur sem tengjast verkefninu fyrir börn.

Á 17. júní fer fram hátíðardagskrá með messu, hátíðarræðu Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, tónlist, opnun myndlistarsýningar sumarsins og lýðveldisköku. Fólki fæddu 1944 sérstaklega boðið í kaffisamsæti á Hrafnseyri. Að lokum fer einnig fram Háskólahátíð Háskólaseturs Vestfjarð á þjóðhátíðardaginn.

Dagskrá 16. júní

11:00 - 17:00

Ef ég væri forseti – smiðja fyrir börn
Smiðjan „Ef ég væri forseti…“ verður opin allan daginn. Í smiðjunni velta börnin fyrir sér hvernig þau myndu vilja nota hæfileika sína og styrkleika, tungumál og áhugamál ef þau væru forseti Íslands. Smiðjan er hluti af verkefninu „Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið.“
Kl. 15:15 verður einnig boðið upp á smiðju þar sem börnum gefst tækifæri til að búa til sól sem sýnir hvað það er sem fær þau til að skína, hverjir styrkleikar þeirra eru og önnur atriði sem skipta máli í lífi þeirra.
Smiðjunum stýrir Kristín R. Vilhjálmsdóttir.

11:00 - 12:00

Leiðsögn á einfaldri íslensku
Íbúar af erlendum uppruna boðnir velkomnir í samstarfi við verkefnið Gefum íslensku séns.
Leiðsögn og fræðsla um íslenska lýðveldið, Jón Sigurðsson, Hrafnseyri og fornminjar á einfaldri íslensku.
Rúta í boði frá Ísafirði til Hrafnseyrar, sjá upplýsingar í þessari frétt.

Fornleifaskóli fyrir börn
Börn fá tækifæri til að spreyta sig á fornleifauppgrefti undir handleiðslu fornleifafræðings. Hvað leynist undir yfirborðinu?

13:00 - 13:45

Opnun sýningarinnar „Landnám í Arnarfirði“ og kynning á verkefninu „Heill heimur af börnum“

Kristín R. Vilhjálmsdóttir segir frá verkefninu Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið.

Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur kynnir sýninguna „Landnám í Arnarfirði“.

Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu flytur ávarp og opnar sýninguna.

Lag Atla Ingólfssonar, tónskálds við ljóð Þórarins Eldjárns „Ávarp fjallkonunnar“ flutt af söng hóp sem settur er saman af þessu tilefni.

14:00 - 15:00 Fornleifaskóli fyrir börn
Börn fá tækifæri til að spreyta sig á fornleifauppgrefti undir handleiðslu fornleifafræðings. Hvað leynist undir yfirborðinu?

 

14:15 - 15:15 Leiðsögn og kynning á fornminjum á Hrafnseyri
Hefst á stuttri kynningu í kapellunni með myndum af minjum sem komnar eru undir torfu aftur. Að því búnu er gengið um á Hrafnseyri og staldrað við á stöðum með opnum rannsóknarskurðum og þar sem minjarnar eru staðsettar.

Dagskrá 17. júní

11:00 - 12:00 Leiðsögn og kynning á fornminjum á Hrafnseyri
Hefst á stuttri kynningu í kapellunni með myndum af minjum sem komnar eru undir torfu aftur. Að því búnu er gengið um á Hrafnseyri og staldrað við á stöðum með opnum rannsóknarskurðum og þar sem minjarnar eru staðsettar.
11:00 - 17:00 Ef ég væri forseti – smiðja fyrir börn
Smiðjan „Ef ég væri forseti…“ verður opin allan daginn. Í smiðjunni velta börnin fyrir sér hvernig þau myndu vilja nota hæfileika sína og styrkleika, tungumál og áhugamál ef þau væru forseti Íslands. Smiðjan er hluti af verkefninu „Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið.“

13:00 - 13:45

Hátíðarguðsþjónusta
Hátíðarguðþjónusta: Hátíðarguðþjónusta: Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður predikar og séra Fjölnir Ásbjörnsson þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur undir stjórn Jóngunnars Biering Margeirssonar, sem einnig sér um undirspil.

14:15

Setning Þjóðhátíðar 

Hátíðarræða: Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra

Tónlist: Bríet Vagna, tónlistarkona flytur lög.

15:00

Háskólahátíð
Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda.

Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.

Opnun myndlistarsýningar sumarsins. Yfirlitssýning á verkum í eigu Hrafnseyrar.

Sýningarstjóri: Ólöf Björk Oddsdóttir.

Kaffiveitingar í boði Hrafnseyrar í burstabænum á meðan hátíðarhöldunum stendur fram til kl. 17:00.

Einnig verður hægt að kaupa súpu og brauð.

Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.

Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30

Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00
Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútuna.

 

Upplýsingar

Ný sýning um Jón Sigurðsson var opnuð árið 2011 á Hrafnseyri í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans á staðnum.

A new exhibition about Jón Sigurðsson was opened in 2011 at Hrafnseyri celebrating his 200 years anniversary.

Opnunartími (Opening hours)

1. júní - 8. september

kl. 11:00 - 17:00 alla daga

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Hópar utan opnunartíma
Vinsamlegast hafið samband til að bóka komur hópa utan opnunartíma.

Sími: 456-8260
Netfang: hrafnseyri@hrafnseyri.is