Heimsókn 5 manna leikhóps frá „The Royal Central School of Speech and Drama“ í London
Fimm manna alþjóðlegur leikhópur frá The Royal Central School of Speech and Drama í London heimsækir Hrafnseyri og dvelur þar í 9 daga í júli. Um er að ræða lokaverkefni nemenda við skólann, sem þau ætla að vinna að hluta til á staðnum, auk þess sem þau sýna "work in progress", eða hluta úr verkefni sínu, sem þau eru enn að þróa og vinna að, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, mánudaginn 21. júlí.