Hrafnseyri.is - Fréttir
13:00
Guðsþjónusta á Hrafnseyri í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Prestur: Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir, sóknarprestur á Þingeyri.
13:45
Þjóðhátíðardagskrá hefst
Kaffiveitingar í boði og súpa og brauð til sölu.
14:15
Hátíðarræða
Ræðumaður: Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands.
Fjallkona
Aðrar ræður og ávörp.
Tónlistaratriði: Ljósbrá Loftsdóttir, söngkona.
15:30 – 17:00
Útskriftarathöfn vestfirskra háskólanemenda
Hátíðleg athöfn Háskólaseturs Vestfjarða á 20 ára afmæli þeirra.
Kynnir: Guðmundur Hálfdánarson, prófessor.
Þann 16. júní síðastliðinn var opnuð sýningin Landnám í Arnarfirði á Hrafnseyri. Sýningin var hluti af dagskrá í tengslum við 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins en samhliða því var 1150 ára sögu Íslandsbyggðar minnst. Það var því við hæfi að setja upp sýningu á Hrafnseyri til að vekja athygli á þeim merkilegu fornleifrannsóknum sem unnar hafa verið í Arnarfirði undan farin ár.
Þar sem sýningin var aðeins opin í sumar þótti tilvalið að miðla efni hennar hér á vef Hrafnseyrar einnig og er megnið af sýningartextanum nú aðgengilegur hér á vefnum ásamt ljósmyndum sem prýddu sýninguna.
Sýningin byggir á þeim viðamiklu rannsóknum sem unnar hafa verið í Arnarfirði frá árinu 2011 undir stjórn Margrétar Hrannar Hallmundsdóttur, fornleifafræðings hjá Náttúrustofu Vestfjarða, undir yfirskriftinni Arnarfjörður á miðöldum.
Með því að elta þennan hlekk má nálgast sýningartextann og myndirnar.
Árlegur fornminjadagur verður haldinn á Hrafnseyri sunnudaginn 25. ágúst. Þátttaka í deginum er ókeypis og eru allir velkomnir. Dagskráin hefst kl. 14:00. En einnig verður boðið upp á fonleifaskóla barnanna frá kl. 13.
Boðið verður upp á leiðsögn og kynningu á fornminjum á Hrafnseyri, þar sem nú stendur yfir fornleifarannsókn, og á Auðkúlu, þar sem grafið hefur verið upp landnámsbýli. Dagskráin hefst á stuttri kynningu í kapellunni. Að því búnu er gengið um Hrafnseyri, þar sem staldrað verður við á minjastöðum og komið við á uppgraftarsvæði sem unnið hefur verið við í sumar. Að því loknu verður farið til Auðkúlu fyrir þá sem vilja skoða minjasvæðið þar.
Sýningin Landnám í Arnarfirði verður einnig opin. Sýningin var opnuð þann 16. júní síðastliðinn í tilefni af 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins og 1150 ára sögu byggðar á Íslandi. Á sýningunni er fjallað um fornleifarannsóknir í Arnarfirði og sýnt úrval gripa frá landnámsöld. Gripirnir eru úr fornleifauppgröftum á Hrafnseyri og Auðkúlu.
Börnum gefst kostur á að prófa að grafa í fornleifaskóla barnanna á Hrafnseyri. Hann verður opinn frá kl. 13-17, og geta bæði ungir sem aldnir spreytt sig undir leiðsögn fornleifafræðinga.
Í gær fengum við góða heimsókn frá Danmörku þegar rithöfundurinn Brynja Svane og þýðandi hennar Sigurlín Sveinbjörnsdóttir komu við á Hrafnseyri. Þær stöllur komu færandi hendi og afhentu staðarhaldara skáldsöguna Guðrún – Ættarsaga frá Vestfjörðum sem nýverið kom út hjá bókarforlaginu Sæmundi. En í dag kl. 16 munu þær kynna bókina í Byggðasafni Vestfjarða á Ísafirði.
Bókin er fyrsta bindið í fjögurra bóka flokki sem segir sögu forfeðra Brynju Svane og kom út í Danmörku á árunum 2018-2023. Sögusviðið er m.a. Auðkúluhreppur hinn forni en sagan hefst í Reykjanesi við Djúp þaðan sem fjölskyldan flytur í Arnarfjörð þegar danski kóngurinn, Kristján sjöundi, vildi efla saltgerð í Reykjanesi.
Brynja svane er fædd á Ísafirði en ólst upp á Íslandi og í Danmörku. Hún var áður prófessor í frönskum bókmenntum við Háskólann í Uppsölum og hefur gefið út fjölda fagbóka, fyrir utan sjö skáldsögur á árunum 2012-2023. Skáldsagan Guðrún er fyrsta af fjórum bókum sem gefnar hafa veirð út frá 2018-2023 og er söguleg skáldsaga um fjölskyldu og samferðamenn hennar á 18. öld á norðanverðum Vestfjörðum.
Fornleifafræðingarnir dr. Guðný Zoëga frá Háskólanum á Hólum og Dr. John Steinberg munu koma á Hrafnseyri og fjalla um fornleifarannsóknir sem þau vinna að á Norðurlandi. Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við vettvangsnámskeið í fornleifafræði sem fer nú fram á Hrafnseyri. Fyrirlesturinn er á ensku en er öllum opinn. Hann hefst kl. 16:00 föstudaginn 16. ágúst í kapellunni á Hrafnseyri.
Þann 16. og 17. júní verði hátíðardagskrá á Hrafnseyri í tilefni 80 ára afmælis íslenska lýðveldisins og 1150 ára sögu byggðar á Íslandi. Þann 16. júní verður sjónum sérstaklega beint að landnámsminjum á Hrafnseyri þegar sýningin „Landnám í Arnarfirði“ verður opnuð. Í kjölfarið verður gestum boðið í leiðsögn um minjastaði á Hrafnseyri og börnin fá einnig að kynnast fornleifafræði af eigin raun í fornleifaskóla fyrir börn. Íbúar af erlendum uppruna eru sérstaklega boðnir velkomnir á Hrafnseyri þennan dag í samstarfi við verkefnið Gefum íslensku séns. Verkefnið „Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið“ verður einnig kynnt og boðið upp á smiðjur sem tengjast verkefninu fyrir börn.
Á 17. júní fer fram hátíðardagskrá með messu, hátíðarræðu Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, tónlist, opnun myndlistarsýningar sumarsins og lýðveldisköku. Fólki fæddu 1944 sérstaklega boðið í kaffisamsæti á Hrafnseyri. Að lokum fer einnig fram Háskólahátíð Háskólaseturs Vestfjarð á þjóðhátíðardaginn.
16. júní
11:00 – 12:00
Leiðsögn á einfaldri íslensku
Íbúar af erlendum uppruna boðnir velkomnir í samstarfi við verkefnið Gefum íslensku séns.
Leiðsögn og fræðsla um íslenska lýðveldið, Jón Sigurðsson, Hrafnseyri og fornminjar á einfaldri íslensku.
Rúta í boði Gefur íslensku séns frá Ísafirði til Hrafnseyrar, þátttakendum að kostnaðarlausu. Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða kl. 10:00 og frá Hrafnseyri kl. 15:00. Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040 (eða í síma 869 2045) til að skrá ykkur í rútuna. Rútan tekur farþega á leiðinni sé þess óskað.
11:00 – 12:00
Fornleifaskóli fyrir börn
Börn fá tækifæri til að spreyta sig á fornleifauppgrefti undir handleiðslu fornleifafræðings. Hvað leynist undir yfirborðinu?
13:00 – 13:45
Opnun sýningarinnar „Landnám í Arnarfirði“ og kynning á verkefninu „Heill heimur af börnum“
Kristín R. Vilhjálmsdóttir segir frá verkefninu Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið.
Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur kynnir sýninguna „Landnám í Arnarfirði“.
Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu flytur ávarp og opnar sýninguna.
Lag Atla Ingólfssonar, tónskálds við ljóð Þórarins Eldjárns „Ávarp fjallkonunnar“ flutt af söng hóp sem settur er saman af þessu tilefni.
Landnám í Arnarfirði – sýning í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins og 1150 ára sögu Íslandsbyggðar
Á 80 ára afmæli lýðveldisins, árið 2024, minnumst við einnig 1150 ára sögu Íslandsbyggðar. Af þessu tilefni er sett upp sýningin „Landnám Arnarfjarðar“ á Hrafnseyri. Á sýningunni er fjallað um fornleifarannsóknir í Arnarfirði og úrval gripa frá landnámsöld sýndir. Gripirnir eru úr fornleifauppgreftri á Hrafnseyri og Auðkúli.
Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið
Í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi efndu Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum til verkefnisins „Heil heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið“. Hugmyndin er að hvetja börn til að miðla því sem þeim finnst mikilvægt og áhrifaríkt í lífi sínu og umhverfi á sjónrænan hátt - fólk, landslag, menning, listir, áhugamál, náttúra eða annað - og koma því til skila á nýju gagnvirku Íslandskorti sem er í mótun.
14:15 – 15:15
Leiðsögn og kynning á fornminjum á Hrafnseyri
Hefst á stuttri kynningu í kapellunni með myndum af minjum sem komnar eru undir torfu aftur. Að því búnu er gengið um á Hrafnseyri og staldrað við á stöðum með opnum rannsóknarskurðum og þar sem minjarnar eru staðsettar.
14:00 – 15:00
Fornleifaskóli fyrir börn
Börn fá tækifæri til að spreyta sig á fornleifauppgrefti undir handleiðslu fornleifafræðings. Hvað leynist undir yfirborðinu?
11:00 – 17:00
Ef ég væri forseti – smiðja fyrir börn
Smiðjan „Ef ég væri forseti…“ verður opin allan daginn. Í smiðjunni velta börnin fyrir sér hvernig þau myndu vilja nota hæfileika sína og styrkleika, tungumál og áhugamál ef þau væru forseti Íslands. Smiðjan er hluti af verkefninu „Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið.“
Kl. 15:15 verður einnig boðið upp á smiðju þar sem börnum gefst tækifæri til að búa til sól sem sýnir hvað það er sem fær þau til að skína, hverjir styrkleikar þeirra eru og önnur atriði sem skipta máli í lífi þeirra.
Smiðjunum stýrir Kristín R. Vilhjálmsdóttir.
Lýðveldishátíð 17. júní
11:00 – 12:00
Leiðsögn og kynning á fornminjum á Hrafnseyri
Hefst á stuttri kynningu í kapellunni með myndum af minjum sem komnar eru undir torfu aftur. Að því búnu er gengið um á Hrafnseyri og staldrað við á stöðum með opnum rannsóknarskurðum og þar sem minjarnar eru staðsettar.
11:00 – 17:00
Ef ég væri forseti – smiðja fyrir börn
Smiðjan „Ef ég væri forseti…“ verður opin allan daginn. Í smiðjunni velta börnin fyrir sér hvernig þau myndu vilja nota hæfileika sína og styrkleika, tungumál og áhugamál ef þau væru forseti Íslands. Smiðjan er hluti af verkefninu „Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið.“
13:00
Hátíðarguðsþjónusta
Hátíðarguðþjónusta: Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður predikar og séra Fjölnir Ásbjörnsson þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur undir stjórn Jóngunnars Biering Margeirssonar, sem einnig sér um undirspil.
13:45
Lýðveldiskaka
Lýðveldiskaka í boði í burstabænum. Fólki fæddu 1944 sérstaklega boðið í kaffisamsæti á Hrafnseyri. Kaffiveitingarnar verða á boðstólnum á meðan á athöfninni stendur til kl. 17:00.
14:15
Þjóðhátíð
Setning Þjóðhátíðar
Hátíðarræða: Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Tónlist: Bríet Vagna flytur tónlist.
15:00
Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda á vegum Háskólaseturs Vestfjarða
Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.
Opnun myndlistarsýningar sumarsins. Yfirlitssýning á verkum í eigu Hrafnseyrar.
Sýningarstjóri: Ólöf Björk Oddsdóttir.
Kaffiveitingar í boði Hrafnseyrar í burstabænum á meðan hátíðarhöldunum stendur fram til kl. 17:00.
Einnig verður hægt að kaupa súpu og brauð.
Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.
Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30
Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00
Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútuna.
Síðastliðinn föstudag vísiteraði biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, Hrafnseyri. Með í för voru sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir, prestur á Þingeyri og sr. Magnús Erlingsson, prófastur Vestfjarðaprófastsdæmis ásamt Elínu Elísabetu Jóhannsdóttur, fræðslustjóra Þjóðkirkjunnar. Ingi Björn Guðnason, staðarhaldari á Hrafnseyri tók á móti biskupi og fylgdarliði ásamt Hreini Þórðarsyni, bónda á Auðkúlu og formanni sóknarnefndar Hrafnseyrarsóknar. Það var ánægjulegt að taka á mót frú Agnesi sem er þessa dagana að ljúka síðustu embættisverkum sínum áður en nýr biskup tekur við 1. september.
Hrafnseyri er forn kirkjustaður og má ætla að kirkja hafi verið byggða á staðnum á 11. öld. Tóftir miðaldakirkjunnar og kirkjugarðsins eru vel sýnilegar friðlýstar fornminjar sem standa sunnan við núverandi kirkju sem reist var árið 1886. Einnig er á staðnum kapella sem er hluti af aðalbyggingu staðarins. Oftast nær er messað tvisvar á ári á Hrafnseyri, í kapellunni á 17. júní og í kirkjunni síðsumars.
Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri hóf dagskrá í tengslum við 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins í síðustu viku með þátttöku í Púkanum – Barnamenningarhátíð Vestfjarða. Eitt af þeim verkefnum sem Hrafnseyri tekur þátt í af þessu tilefni nefnist Heill heimur af börnum – Börn setja mark sitt á Íslandskortið og er unnið í samstarfi við Þjóðgarðinn á Þingvöllum og Kristínu R. Vilhjálmsdóttur menningarmiðlara.
Nemendur Grunnskólans á Ísafirði tóku þátt í verkefninu í vikunni og var það jafnframt hluti af Púkanum – Barnamenningarhátíð Vestfjarða.
Markmið Heils heims af börnum er að skapa meðvitund um mikilvægi þess að kynnast sögu, styrkleikum og hugmyndaauðgi annarra og efna til samræðu um hvernig við öll skiptum máli í lýðræðislegu samfélagi. Um leið er lögð áhersla á að hlúa að virðingu fyrir hvert öðru þvert á fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Horft er til fortíðar og framtíðar og staldrað við í nútímanum. Augu barnanna eru opnuð fyrir því ríkidæmi sem er að finna á hverjum og einum stað, bæði í staðnum sjálfum og í fólkinu sem þar býr. Börnin taka sjálf þátt í því að skilgreina „ríkidæmið“ í nærumhverfi sínu, fólkið, landslagið, náttúruna, menningarlífið og menningararf. Verkefnið fellur því einstaklega vel að þema Púkans þetta árið en á hátíðinni velta börnin fyrir sér spurningunni: Af hverju búum við hér?
Í Grunnskólanum á Ísafirði unnu börn á miðstigi að fjölbreyttum verkefnum í vikunni. Þau bjuggu til risastóran tungumálaregnboga sem hafði að geyma orð á öllum þeim tungumálum sem hópurinn býr að. Orðin endurspegluðu þau gildi sem börnin vildu leggja áherslu á í vinnunni: Ást, frið, hamingju, fjölskyldu, líf, lýðræði og vináttu. Einnig unnu þau hvert fyrir sig að tímalínu eigin ævi, myndrænni sól sem lýsir því hvað fær þau til að ljóma og settu saman sína eigin persónulegu fjársjóðskistu með munum sem skipta þau máli.
Vikan endaði svo á glæsilegu Menningarmóti þar sem börnin kynntu afrakstur vinnu sinnar.
Sannarlega skemmtileg vika að baki með miðstigi Grunnskólans á Ísafirði.
Næstu skref í verkefninu eru þau að safna saman efni frá sem flestum skólum á landinu og birta á Íslandskorti barnanna.
Síðastliðið sumar tók staðarhaldari á Hrafnseyri við höfðinglegri bókagjöf frá fjölskyldu Hallgríms Sveinssonar og Guðrúnar Steinþórsdóttur, fyrrverandi staðarhöldurum og bændum á Hrafnseyri. Þetta var engin venjuleg bókagjöf því um var að ræða allt upplag bókarinnar Jón Sigurðsson forseti – ævisaga í hnotskurn sem Hallgrímur tók saman og gaf út undir merkjum Vestfirska forlagsins árið 1994, en bókin markaði jafnframt upphafið að útgáfu forlagsins sem Hallgrímur rak allt til æviloka.
Í bókinni er ævi og störf Jóns Sigurðssonar rakin í hnitmiðuðum og aðgengilegum köflum, auk þess sem ýmsum áhugaverðum aukaupplýsingum er komið fyrir í stuttum spássíutextum. Þá prýða bókina fjöldinn allur af ljósmyndum frá ýmsum tímum. Bókin hentar því ýmsum aldurshópum og verður fyrst um sinn nýtt sem gjöf til skólahópa sem koma á Hrafnseyri til að fræðast um sögu staðarins og Jón Sigurðsson.
Fyrsti skólahópurinn sem þáði bókina af gjöf var hópur nemenda á miðstigi grunnskólanna á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri sem tóku þátt í verkefninu Krakkaveldið á Hrafnseyri en verkefnið var hluti af barnamenningarhátíðinni Púkanum sem fram fór um alla Vestfirði í september síðastliðnum.
Staðarhaldari þakkar fjölskyldu Hallgríms og Guðrúnar kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf og hlakkar til að færa hana áfram til ungra gesta staðarins á komandi árum.
Ný Hrafnseyrarnefnd tók til starfa síðasumars og hefur nú þegar fundað tvívegis. Nefndin var skipuð í byrjun sumars af forsætisráðuneytinu og er skipuð fulltrúum þess, Háskóla Íslands, Háskólaseturs Vestfjarða og Vestfjarðastofu.
Nefndin hefur það hlutverk að marka starfseminni á Hrafnseyri við Arnarfjörð stefnu og inntak með því meðal annars að leggja árlega til við ráðuneytið áætlun á grundvelli þeirrar framtíðarsýnar sem mörkuð hefur verið í sóknaraætlun landshlutans á hverjum tíma. Einnig er lögð til grunndvallar skýrsla starfshóps um framtíðarstarfsemi á Hrafnseyri sem kom út í september 2019. Nefndin er einnig faglegur bakhjarl staðarhaldara. Nefndinni er uppá lagt að styðja við annað menningar- og fræðslustarf á Vestfjörðum og gæta að góðum tengslum við aðra starfsemi á vegum hins opinbera þar sem arfleifð Jóns Sigurðssonar er haldið á lofti.
Nefndin er svo skipuð:
Guðmundur Hálfdanarson, formaður
Elísabet Gunnarsdóttir f.h. Háskólaseturs Vestfjarða, og Peter Weiss til vara.
Margrét Hallgrímsdóttir, varaformaður f.h. forsætisráðuneytisins, og Páll Þórhallsson til vara.
Aðalsteinn Óskarsson, f.h. Vestfjarðastofu og Steinunn Ása Sigurðardóttir til vara.
Ingi Björn Guðnason, staðarhaldari á Hrafnseyri, er starfsmaður nefndarinnar.